Heslihnetu Swirl
Ókei, þegar við töluðum um hina ísana okkar (eins og þennan) gætum við hafa minnst á snilldina á bak við nálgun sem snýr að einfaldleika, en ef við eigum að vera alveg hreinskilin: hver vill borða eitthvað hversdagslegt og óspennandi þegar Heslihnetu Swirl ís er til? Og já, þetta er eins fáránlega frábært og það hljómar. Sko, þú ættir örugglega ekki að trúa öllu því sem þú lest á vefsíðum, sérstaklega um þeirra eigin vörur, en það er enginn ís betri en þessi. Nema þú sért súkkulaðisjúkur einstaklingur og það vill svo til að allir hjá Oatly eru það. Af því tilefni höfum við líka búið til súkkulaðiafbrigði af þessum lúxus ís: Súkkulaði Fudge er það sem við ákváðum að kalla hann, sérstaklega því það lýsir honum nákvæmlega eins og hann er.
What’s Amazing
What’s Amazing
Þetta er rosalega mikill lúxus karamelluís sem inniheldur saltaða karamellusósu og sykurhúðaðar heslihnetur. Það þarf ekki að segja meira en það.
What might be less amazing
What might be less amazing
Ísinn inniheldur fullherta fitu. Ef hann gerði það ekki, væri ekki hægt að lýsa honum sem ís, en hægt væri að setja hann í sinn eigin einstaka flokk: fljótandi vöru með söltuðu karamellubragði og sykurhúðuðum heslihnetum. Til að vera alveg pottþétt á þessu, þá notum við plöntumiðaða og fullherta fitu. En þú varst líklega búinn að átta þig á því.
Last but not least
Last but not least
Vegan ís er ekki hollari bara því hann er plöntumiðaður, þessi ís er alveg jafn óhollur og hver annar ís. Þess vegna er hann góður, sem á yfirleitt við um óholla hluti. Það að ávextir séu eins og nammi náttúrunnar? Það trúði því eiginlega enginn.
Fleiri spurningar? Svör við algengum spurningum má finna hér.
Ingredients
Ingredients
Vatn, sykur, glúkósasíróp, hafrar, dextrósi, repjuolía, heslihnetur, fullhertar jurtaolíur (kókos, repju), kókosolía, tapíókasterkja, náttúruleg bragðefni, salt, ýruefni (ein- og tvíglýseríð af fitusýrum), brúnaður sykur, bindiefni (karóbgúmmí, gúargúmmí).
Inniheldur: 6% heslihnetur.
Nutritional value
Nutritional value
Næringarupplýsingar fyrir 100 g:
- Orka
- 1000 kJ/240 kkal
- Fita
- 14 g
- þar af mettuð
- 6.0 g
- Kolvetni
- 28 g
- þar af sykurtegundir
- 23 g
- Trefjar
- 1.1 g
- Prótein
- 1.4 g
- Salt
- 0.28 g